Tuesday, March 22, 2011
Að rækta vini og fjölskyldu
Var að skoða gamlar færslur frá mér , hér á þessari síðu.. og einnig frá blog.central.is/stelpanmedharid og svo stelpanmedharid.blogspot.com -
Mér finnst pínu fyndið að hafa verið með þrjár bloggsíður - byrjaði sem sagt að blogga árið 2004.
Þessi færsla er ein af uppáhalds færslunum mínum.
"Sunnudagur til sælu -
Við Hildur systir kíktum í heimsókn til ömmu okkar í dag. Ræddum um daginn og veginn, fengum okkur ýmis góðgæti og lásum saman ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Amma mín, Sigurfljóð Jónsdóttir, sem verður níræð í sumar tók sig einnig til og flutti Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson fyrir okkur í einum rikk. Við systurnar urðum agndofa og klöppuðum fyrir henni líkt og við værum staddar á frumsýningu á leikriti aldarinnar.
Amma mín er dásamleg, mér þykir svo vænt um hana.
Gunnarshólmi
Skein yfir landi sól á sumarvegi, og silfurbláan Eyjafjallatind gullrauðum loga glæsti seint á degi. Við austur gnæfir sú hin mikla mynd hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar í himinblámans fagurtærri lind. Beljandi foss við hamrabúann hjalar á hengiflugi undir jökulrótum, þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar. En hinum megin föstum standa fótum, blásvörtum feldi búin, Tindafjöll og grænu belti gyrð á dalamótum. Með hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll, horfa þau yfir heiðarvötnin bláu, sem falla niður fagran Rangárvöll, þar sem að una byggðarbýlin smáu, dreifð yfir blómguð tún og grænar grundir. Við norður rísa Heklu tindar háu. Svell er á gnípu, eldur geisar undir. Í ógna djúpi, hörðum vafin dróma, skelfing og dauði dvelja langar stundir. En spegilskyggnd í háu lofti ljóma hrafntinnuþökin yfir svörtum sal. Þaðan má líta sælan sveitablóma, því Markarfljót í fögrum skógardal dunar á eyrum. Breiða þekur bakka fullgróinn akur, fagurst engjaval þaðan af breiðir hátt í hlíðarslakka glitaða blæju, gróna blómum smám. Klógulir ernir yfir veiði hlakka, því fiskar vaka þar í öllum ám. Blikar í lofti birkiþrasta sveimur, og skógar glymja, skreyttir reynitrjám. Þá er til ferðar fákum snúið tveimur, úr rausnargarði háum undir Hlíð, þangað sem heyrist öldufalla eimur, því atgang þann ei hefta veður blíð, sem voldug reisir Rán á Eyjasandi, þar sem hún heyir heimsins langa stríð. Um trausta strengi liggur fyrir landi borðfögur skeið, með bundin segl við rá, skínandi trjóna gín mót sjávar grandi. Þar eiga tignir tveir að flytjast á, bræður, af fögrum fósturjarðar ströndum og langa stund ei litið aftur fá, fjarlægum ala aldur sinn í löndum, útlagar verða, vinar augum fjær. Svo hafa forlög fært þeim dóm að höndum. Nú er á brautu borinn vigur skær frá Hlíðarenda hám, því Gunnar ríður atgeirnum beitta búinn. Honum nær dreyrrauðum hesti hleypir gumi, fríður og bláu saxi gyrður, yfir grund. Þar mátti kenna Kolskegg allur lýður. Svo fara báðir bræður enn um stund. Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti. Kolskeggur starir út á Eyjasund, en Gunnar horfir hlíðarbrekku móti. Hræðist þá ekki frægðarhetjan góða óvina fjöld, þó hörðum dauða hóti. "Sá ég ei fyrr svo fagran jarðargróða, fénaður dreifir sér um græna haga, við bleikan akur rósin blikar rjóða. Hér vil eg una ævi minnar daga alla, sem guð mér sendir. Farðu vel, bróðir og vinur!" - Svo er Gunnars saga. - - - Því Gunnar vildi heldur bíða hel en horfinn vera fósturjarðar ströndum. Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél, fjötruðu góðan dreng í heljar böndum. Hugljúfa samt ég sögu Gunnar tel, þar sem ég undrast enn á köldum söndum lágan að sigra ógnabylgju ólma algrænu skrauti prýddan Gunnarshólma. Þar sem að áður akrar huldu völl, ólgandi Þverá veltur yfir sanda. Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll árstrauminn harða fögrum dali granda. Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda. En lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.
Jónas Hallgrímsson
Pant verða eins og amma mín þegar ég verð stór."
Skrítið að eiga uppáhalds færslu .. en þessi dagur sem ég skrifaði um er einn af mínum uppáhalds dögum.
Þegar Amma mín var ekki bara amman sem maður fór í heimsókn til, fékk pönnukökur og kaffi eða mjólk ... heldur þegar ég leit fáránlega mikið upp til ömmu minnar og fannst hún vera kvenhetja.
Ég sé svo engan veginn eftir þeim tíma, þegar ég átti að vera að læra á bókhlöðunni .. eða í tíma í íslenskunni og eyddi þeim tíma frekar með ömmu minni á Lindargötunni.
Við ræddum um pólitík, tilhugalífið , glugguðum í ljóðasafninu hennar og eða ræddum um stríðsárin.
Amma mín er best og ég kynntist henni upp á nýtt.
Væmin.. já kannski. En ég er alltaf eða mjög oft með samviskubit yfir því hvað ég er léleg að heimsækja elsku yndislegu ömmu mína.
Ræktum fjölskyldu og vini .. þau eru líf okkar og yndi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Post a Comment