Wednesday, March 30, 2011

Útvarp Hjallabraut

Við fjárfestum í litlu útvarpi á mánudaginn. Sem er algjör snilld

Er einn helsti aðdáandi þáttarins Virkir morgnar á Rás 2 - Hlustaði stundum á útvarpið í tölvunni en gleymdi því fáránlega oft. Það er því afar einfalt að ýta á einn takka og þá er fólk komið í heimsókn í eldhúsið mitt.

Sem sagt, þá er ég búin að hlusta á útvarpið okkar fallega í 2 daga.
Vonandi gleymi ég síðan ekki að ég eigi útvarp.

...

Við Orri erum veik í dag .. ég var búin að plana að fara í göngutúr aldarinnar. Svekkjandi. Orri er reyndar mun slappari heldur en mamma hans.

Við slökktum aðeins á útvarpinu sem var búið að hljóma hér í morgun og erum búin að búa til okkar eigin "útvarpsstöð" - Reyndar eru bara tveir hlustendur eða þrír ef ég tel kisa með.

Þegar maður er myglaður og með 39°C stiga hita þá er ógeðslega gaman að hlusta á þessi lög :










og höndinni dillað upp og niður ala Amma Sigrún

0 comments: