Saturday, May 21, 2011

Ellen best í heimi ..

Ég horfi oft á spjallþætti og finnst eins og Oprah Winfrey sé ein af mínum bestu vinkonum.

Jay Leno er leiðinlegur - David Letterman ennþá leiðinlegri.

Skil ekki af hverju í fjandanum, afskakið orðbragðið, að engin íslensk sjónvarpsstöð sýni ekki spjallþáttinn hennar Ellen Degeneres.
Hún er svo dásamlega fyndin að ég á ekki einu sinni til orð til að lýsa því yfir hvað mér finnst hún frábær.

Íslenskir spjallþættir eru náttúrulega bara hroðalegir, hrikalegir og kjánalegir.

Eiríkur fyrrverandi ritstjóri Séð og Heyrt var með spjallþáttinn Eiríkur - ég missti sko ekki af einum einasta þætti en vissi sjaldan um hvað var verið að ræða.. ég var líka örugglega bara 8 ára eða eitthvað.

Gísli Marteinn - klappaði alltaf fyrir gestunum sínum því það voru engir áhorfendur í sal.

Á tali hjá Hemma Gunn - þetta var náttúrulega skemmtiþáttur og í minningunni var hann góður reyndar.

Logi í Beinni reynir bara að finna til gamlar klippur af viðmælandanum sínum og svo rakkar hann viðmælandann niður í beinni útsendingu (reyndar er hann ekkert alltaf í beinni útsendingu.)

Nenni ekki að rifja upp fleiri gamla íslenska spjallþætti.

Ég vil bara fá spjallþáttinn Ellen inn í mína stofu.

3 comments:

Áslaug said...

Þú VERÐUR að dwl. Chelsea Handler...ÓGEÐ fyndin manneskja :)

Anonymous said...

Meira meira blogg

Anonymous said...

ertu nokkuð hætt að blogga,
kv. thelma fan